top of page

Hvað gerir Vaka?

Fulltrúar Vöku innan Stúdentaráðs

Fulltrúar Vöku í Stúdentaráði Háskóla Íslands

Dagur Kárason (Félagsvísindasvið)

Bergrún Anna Birkisdóttir (Menntavísindasvið)

 

Fulltrúar Vöku í sviðsráðum

 

Ellen Geirsdóttir Håkansson (Félagsvísindasvið)

Kamila Antonina Tarnowska (Heilbrigðisvísindasvið)

Sóley Arna Friðriksdóttir (Menntavísindasvið)

Laufey Lind Sigþórsdóttir McClure (Verkfræði- og náttúruvísindasvið)

Magnús Orri Magnússon (Hugvísindasvið)

Fulltrúar Vöku í nefndum Stúdentaráðs

Alþjóðanefnd

Kamila Antonina Tarnowska og Guðrún Elsa Gunnarsdóttir

Félags- og menningarnefnd

Arent Orri Jónsson og Skarphéðinn Finnbogason

Fjármála- og atvinnulífsnefnd

Birta Karen Tryggvadóttir (Forseti) og Guðrún Elsa Gunnarsdóttir

Fjölskyldunefnd

Jóna Guðbjörg Ágústsdóttir (Forseti) og Ólína Lind Sigurðardóttir

Jafnréttisnefnd

Kristbjörg Eva Andersen Ramos og Lena Stefánsdóttir

Kennslumálanefnd

Sóley Arna Friðriksdóttir

Lagabreytingarnefnd

Lenya Rún Taha Karim og Þorgerður Julía Halldórsdóttir

Nýsköpunar- og frumkvöðlanefnd

Friðrik Hreinn Sigurðsson

Umhverfis- og samgöngunefnd

Kamila Antonina Tarnowska og Jón Gunnar Hannesson

​Nánari upplýsingar um Stúdentaráð Háskóla Íslands má nálgast inn á heimasíðu félagsins student.is.

Stjórn félagsins

Vaka_titill_haegri_texti_Svart.png

Stjórn Vöku er kosin af vökuliðum á aðalfundi félagsins, á vori hverju.

 

Formaður

Hlutverk formanns er að kveða til stjórnarfunda og stjórna þeim og sér um að allir stjórnarmeðlimir sinni skyldum sínum sem slíkir. Formaður hefur eftirlit með starfsemi félagsins og að lögum þess og samþykktum sé fylgt. Formaður ber einnig ábyrgð á öllu útgefnu efni félagsins.

 

Varaformaður

Varaformaður er staðgengill formanns í fjarveru hans og hefur hann jafnframt umsjón með birtingu laga félagsins. Varaformaður heldur  utan um félagatal Vöku og annast endurnýjun þess.

 

Ritari

Ritari heldur fundargerð stjórnar og funda á vegum félagsins og varðveitir allt útgefið efni félagsins.

 

Gjaldkeri

Gjaldkeri annast fjármál félagsins.

 

Útgáfustjóri

Útgáfustjóri hefur umsjón með allri útgáfu félagsins og sér til þess að ávallt komi út sérstakt kosningablað er kynnir stefnu og framboðslista félagsins í Háskóla- og Stúdentaráðskosningum. Útgáfustjóri annast einnig heimasíðu Vöku.

 

Skemmtanastjóri

Skemmtanastjóri hefur umsjón með öllu skemmtunum á vegum félagsins.

 

Markaðsfulltrúi

Markaðsfulltrúi ber ábyrgð á að útgefið efni gangi ekki í bága við gildi og sjónarmið félagsins og ber ábyrgð á ímynd félagsins á ljósvakamiðlum, svo sem samfélagsmiðlum.

 

Meðstjórnendur

Meðstjórnendur skulu skipta með sér verkum í samráði við stjórn.

 

Oddviti

Oddviti Vöku er kjörinn af aðalfundi og er talsmaður Vöku. Oddviti heldur utan málefnavinnu félagsins gagnvart Stúdentaráði og er tengiliður Vöku við Stúdentaráð.

Núverandi stjórn félagsins má sjá hér 

DSC01235.JPG

Nefndir Vöku

Innan Vöku eru fjölbreyttar og skemmtilegar nefndir. Þátttaka í þeim er frábær leið til að kynnast innra starfi hreyfingarinnar.

 

Alþjóðanefnd

Alþjóðanefnd sér um að kynna starfsemi Vöku fyrir erlendum nemendum og hvetja þá til þess að taka þátt í innri starfsemi hreyfingarinnar.

 

Markaðsnefnd

Hlutverk markaðsnefndar skiptist í rauninni í þrennt. Nefndin sér aðallega um að gera Vöku sýnilega á öllum helstu samfélagsmiðlum en nefndin sér einnig um fjáraflanir hreyfingarinnar og hönnun á merch.

 

Málefnanefnd

Málefnanefnd sér um málefnavinnu hreyfingarinnar. Hún mótar stefnu Vöku.

 

Ritnefnd

Vaka gefur út tvö blöð á hverju skólaári – Glaðvakandi á haustönn og kosningablaðið á  vorönn. Ritnefnd sér um útgáfu þessara rita auk þess að sjá um prófarkalestur og þýðingar greina og annars efnis sem Vaka gefur út.

 

Skemmtinefnd

Vaka hefur lengi verið þekkt fyrir viðburði sína en það er skemmtinefndin sem heldur utan um að skipuleggja, framkvæma og halda utan um þessa viðburði.

Viðburðir Vöku

Sumar

  • Útilega Vöku

Haustönn

  • Partý fyrir Októberfest

  • Útgáfa Glaðvakandi

  • Útgáfupartý Glaðvakandi

  • Haustferð Vöku

  • Próflokapartý

Vorönn

  • Kosningabarátta

  • Dúndurfest Vöku

  • ​Útgáfa kosningablaðs Vöku

  • Kosningar til Stúdentaráðs

  • Aðalfundur Vöku

Vegna Covid-19 heimsfaraldursins hafa margir viðburðir fallið niður en verða endurvaktir um leið og hægt er.

Uppfært haust 2022

bottom of page