Stefna lýðræðissinnaðra stúdenta fyrir Menntavísindasvið
Við viljum endurtektarpróf í allar deildir
Þegar er verið að halda sjúkrapróf, þá eiga stúdentar að geta tekið endurtektarpróf.
Fyrirsjáanleiki
Það ætti að gefa upp stundatöflur fyrir allt árið í byrjun skólaárs. Tryggja að slíkar stundatöflur verði birtar tímanleg, t.d. áður en grunnskólar hefjast.
Meiri praktík
Berjast fyrir meiri praktík í námið eins og t.d. að kenna og efla samskiptahæfni við nemendur og skjólstæðinga, og kenna agastjórnun bekkja og hópa. Mikilvægt er að einkunnaskil berist á réttum tíma og áfangar sem auglýstir eru sem fjarnám eiga að vera kenndir sem slíkir. Skylduferðir á vegum skólans eiga ekki að kosta.
Betra skipulag á starfsnámi
Stúdentar ættu að eiga kost á að taka vettvangsnám á eigin vinnustað, sérstaklega stúdentar í kennaradeild. Það ætti að vera meira val og meiri sveigjanleiki. Síðastliðið vor var tekin sú ákvörðun að skerða inntöku í starfstengt nám fyrir fólk með þroskahömlun, Vaka hefur sett sig mikið upp á móti þessu og mun halda því áfram.





