Varamenn

Ugla Ósk Bæhrenz
Sálfræði

Hákon Snorri Rúnarsson
Matvælafræði

Sjöfn Hulda Jónsdóttir
Læknisfræði
Stefna lýðræðissinnaðra stúdenta fyrir Heilbrigðisvísindasvið
Inntökupróf
Þökk sé Vöku er nú hægt að taka inntökupróf í læknis- og sjúkraþjálfunarfræði á Akureyri. Vaka ætlar að halda áfram að berjast fyrir því að fjölga þeim staðsetningum þar sem hægt er að taka prófið.
Endurtektarpróf og upptökur
Vaka tryggði endurtektir í sálfræði á þessu starfsári og ætlum við að tryggja endurtektir fyrir allt nám. Auka þarf upptökur á fyrirlestrum þvert á svið.
Auka sveigjanleika í námi fyrir óléttar konur
Þar á hjúkrunarfræðin sérstaklega við, þar sem er lítill sveigjanleiki og konum ráðlagt að taka sér árspásu. Krefjast þess að háskólinn styðji barnshafandi konur og leyfa þeim að sinna því námi sem þær hafa tök á og treysta sér til, eins og t.d. Að geta tekið bóklega áfanga í stað verklegra áfanga í kringum barneignir.
Stofumál
Stofur í læknagarði eru að springa, of margir nemendur og of litlar stofur. Tímar eru á víð og dreifð um byggingar háskólans, 10 mínútur á milli tíma en 20 mín ganga á milli staðsetninga. Skammtímalausn gæti verið að niðurgreiða hopp ferðir á milli ákveðinna bygginga. Hægt væri að innleiða bestunarmódel, sem þegar er til, til þess að sjá til þess að tímar séu ekki bókaðir í of fjarlægum stofum. Einnig þarf að bæta aðstöðuna í stofum, les-, og hópavinnurýmum.
Opnunartími bygginga og námsframboð
Við viljum lengri opnunartíma í Hámu í Læknagarði og Eirbergi. Tryggja þarf að það sé ekki niðurskurður á námsframboði á heilbrigðisvísindasviði.


