top of page

Ritnefnd

Ritnefnd sér um útgáfu Glaðvakanda og gefur út fjögur blöð yfir skólaárið.

Þar er háskólalífinu velt upp frá öllum mögulegum hliðum – allt frá hugmyndum um hvernig gera megi Háskólann enn betri yfir í það sem er heitt og kalt fyrir hinn almenna háskólanema. 

Anna Sonde_edited_edited.jpg

Skemmtinefnd

Sögur herma að þetta sé mikilvægasta undirfélag Vöku, enda er nefndin einn allsherjar stemmari! Skemmtinefndin sér um að skipuleggja stærstu og eftirminnilegustu viðburði Vöku. Þar ber fyrst að nefna hið margrómaða eftirpartý eftir Októberfest, sem um 400 manns sóttu í fyrra. Einnig verða haldnir Vökubjórar á Stúdentakjallaranum og þegar líður að kosningum tekur Vökufest á Auto við, ásamt hinu sívinsæla kosningapartýi. Hlutverk nefndarinnar er einfalt: að sjá til þess að stemningin sé alltaf í hæstu hæðum og að enginn fari þyrstur heim.

jfjhdd (2).png

Málefnanefnd

Málefnanefnd heldur utan um málefni Vöku og vinnur að því að þróa og móta stefnu félagsins. Nefndin fylgist með því sem er efst á baugi í hagsmunamálum stúdenta, setur fram stefnu og stuðlar að upplýstri umræðu innan félagsins. Hún veitir fulltrúum Vöku stuðning í málefnastarfi, greinir áskoranir sem snerta stúdenta og leitast við að finna raunhæfar lausnir. Málefnanefnd er vettvangur fyrir þá sem vilja hafa áhrif á stefnu Vöku, kafa dýpra í einstök málefni og taka virkan þátt í að bæta háskólasamfélagið.

IMG_4184.jpg

Fjármálanefnd

Fjármálanefnd Vöku sér um að fjármagna félagið, t.d. með sölu auglýsinga. Nefndin er skipuð fólki sem að hefur áhuga á að læra að selja, byggja tengslanet, kynnast fyrirtækjum og fólki í alls konar geirum atvinnulífsins. Þetta snýst hins vegar alls ekki bara um að selja auglýsingar, það er alltaf alvöru stemmning í fjármálanefndinni okkar í „GÚLAGINU“, og ef þú þekkir ekki Gúlagið er þér velkomið að koma! Fjármálanefnd er fyrir alla sem að vilja vera með, skiptir ekki máli hvort þú sért meðfæddur sölumaður eða hafir aldrei selt neitt í lífinu. Ef þér finnst gaman að prófa nýja hluti, kynnast fólki og vera hluti af góðum hópi fólks. Komdu þá endilega í fjármálanefnd Vöku!

IMG_4184.jpg

Markaðsnefnd

Markaðsnefnd Vöku sér um markaðsog kynningarstarf félagsins innan Háskólans. Nefndin vinnur með samfélagsmiðla, myndatökur, myndbönd, grafík, hugmyndavinnu og allt mögulegt þar á milli. Í grunninn snýst starfið um að koma Vöku á framfæri á skapandi hátt. Markaðsnefnd brainstormar hugmyndir, þróar þær saman og finnur svo leiðir til að koma þeim í framkvæmd. Starf­ið er því ótrúlega fjölbreytt og gefur öllum tækifæri til að koma sínum hugmyndum að, prófa sig áfram og skapa eitthvað skemmtilegt. Að vera hluti af markaðsnefndinni er þó ekki bara skapandi vinna, heldur líka frábær leið til að kynnast fólki úr öllum deildum HÍ, prófa eitthvað nýtt og taka virkan þátt í háskólalífinu.

IMG_4184.jpg

Alþjóðanefnd

Alþjóðanefnd Vöku leitar að öflugu og áhugasömu fólki sem vill stuðla að aukinni þátttöku alþjóðanema og skiptinema í starfi félagsins. Markmið nefndarinnar er að skapa sterkara og opnara samfélag þar sem allir nemendur, óháð uppruna eða tungumáli, upplifa sig sem virkan hluta af Vöku og fá tækifæri til að taka þátt í innra starfi félagsins. Nefndin vinnur að því að auka sýnileika Vöku meðal alþjóðanema og skiptinema, hvetja þau til þátttöku í félagsstarfi og efla mætingu á fjölbreytta Vöku-viðburði. Nefndin vinnur meðal annars að því að auka sýnileika Vöku, bæta upplýsingamiðlun, aðstoða við þýðingar og hvetja alþjóðanema til þátttöku í viðburðum og félagsstarfi. Nefndarmeðlimir fá jafnframt tækifæri til að kynnast fólki frá öllum heimshornum, taka þátt í alþjóðaviðburðum og styrkja samfélag alþjóðanema innan Vöku Ef þú hefur áhuga á félagsstarfi og því að gera Vöku að enn opnara og fjölbreyttara félagi, þá viljum við heyra frá þér.

IMG_4184.jpg
bottom of page